Mikið hefur verið fjallað um íslenskt efnahagslíf að undanförnu og þá sértaklega af neikvæðum toga, krónan, bankarnir, og hlutabréfin hafa ekki farið varhuga frá umfjölluninni. Við Íslendingar höfum lifað tímanna tvenna í ólgusjó peninga róstursins, óðaverðbólgu, okurvaxta og neikvæðni. það hlýtur að muna þetta hvaða mannsbarn sem er orðið eldra en 30 ára, en flestir yngri en það ólust upp í allt öðru umhverfi en fyrrgreindur hópur, þó svo að það skipti engu máli í þessari umræðu. síðastliðin ár höfum við Íslendingar upplífað ótrúlegt efnahagslegt umhvefið, sem við höfum bara hreinlega aldrei kynnst. Allt gekk svo vel, allir græddu á tá og fingri og skipti engu hvað það var, á bílnum, húsunum, vinnunni, lántökuninni, allir græddu og innlendir jafnt sem erlendir voru tilbúnir til að lána landanum peningaupphæðir sem honum datt í hug. jákvæðni, lágir vextir og lítil verðbólga (um 6%) hafði ekkert nema jákvætt í för með sér. Nú hefur harðnað á dalnum. dettur manni helst í hug að tímarnir séu að mæta aftur (fyrir 30 árum síðan) engin tiltrú á einu né neinu og það sem manni finnst alvarlegast er að fáir virðast hafa tiltrú á krónunni, króna sem er af orðinu Kóróna er orðin að engu nema sóla, ég spyr bara hverning getum við ætlast til þess að einhverjir aðrir hafi tiltrú á krónunni ef við höfum hana ekki sjálfir, hvernig lítur það út fyrir erlendum fjárfestum og lánadrottnum að horfa til íslands ef við höfum ekki tiltrú á gjaldmiðli okkar? Hvernig gengi manni að selja bílinn sinn sem væri kanski í ágætis standi ef maður hefði ekki nokkra tiltrú á honum? Hugafarið þarf að breytast og sjálfstraustið má ekki víkja fyrir tímabundinni ládeyðu, þetta er tímabundið ástand eins og uppgangstímar voru og tekur enda, höldum virðingu okkar og seljum bílinn okkar fyrir krónur ekki sóla.
Flokkur: Bloggar | 5.3.2008 | 01:11 (breytt kl. 01:11) | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.